Svona smá djókur aðeins til að hressa upp
á þessa síðu!
Síðan lofa ég þar sem ég var að eignast
mína fyrstu myndavél þá ætla ég hlaða inn myndum hér og vera dugleg
að því. Ég þarf bara að kaupa mér minniskort og vola!
En vessgu....
Stelpa býður kærasta sínum um að
koma heim til sín á föstudagskveldi og borða með foreldrum sínum.
Þar sem þetta er nokkuð stór viðburður, þá tilkynnti stelpan
kærastanum sínum að eftir matinn myndi hún vilja fara út með honum
og hafa samfarir í fyrsta sinn.
Jæja, strákurinn er himinlifandi,
en hann hafði aldrei áður haft samfarir, svo hann gerir sér ferð
til lyfjafræðings til að ná sér í nokkra smokka. Hann segir
lyfjafræðingnum að þetta sé fyrsta skiptið og lyfjafræðingurinn
tekur sér klukkutíma í að fræða strákinn um allt sem hann veit um
smokka og samfarir.
Þegar kemur að því að panta, spyr
lyfjafræðingurinn strákinn að því hversu marga smokka hann vilji
kaupa: 3 í pakka, 10 í pakka eða fjölskyldupakka. Strákurinn vildi
gjarnan kaupa fjölskyldupakka, því hann taldi að hann yrði frekar
upptekinn, þetta væri fyrsta skiptið hans, o.s.frv.
Um kvöldið mætir strákurinn heima
til foreldra stelpurnar og kærastan tekur á móti honum. ,,Vá ég er
svo spennt fyrir því að þú hittir foreldra mína, komdu
inn!".
Strákurinn gengur inn og er vísað
til borðs þar sem foreldrar stelpurnar er sest niður. Strákurinn
býðst skyndilega til að fara með borðbæn og hneigir höfuðið. Mínútu
seinna er strákurinn enn við bæn með höfuðið hneigt
niður.
10 mínútur líða og ennþá örlar
ekki á hreyfingu frá stráknum. Eftir 20 mínútur hallar stelpan sér
að kærastanum sínum, sem enn virtist í djúpri bæn, og hvíslar að
honum: ,,Ekki vissi ég að þí værir svona trúaður!"
Strákurinn snýr sér við og hvíslar
til baka: ,,Ekki vissi ég að pabbi þinn væri
lyfjafræðingur!!!!!!!"
Hahahahah góður þessi
Kveðja Heba